About RFF
In recent years, the creative industries in Iceland have been flourishing. The local market has become a melting pot of exciting new creative enterprises, with individuals seeking to expand their businesses overseas. However despite this desire, these businesses have often been unable to fulfill their potential as a result of limited marketing budgets and the lack of a common creative vehicle.
Reykjavik Fashion Festival seeks to provide the opportunity to channel Iceland's creative energy into a single event, both for the local Icelandic audience as well as an international audience.
United by a common passion for Iceland and it's unique take on fashion, design and music, Iceland's foremost creative business leaders seek to champion the talent that makes the country so unique. Reykjavik Fashion Festival will see an exciting mixture of fashion, design and music at venues around the city. The second annual Reykjavik Fashion Festival will take place on the 31st March - 3rd April 2011.
Á undanförnum árum hefur orðið mikill uppgangur og gróska í íslenskri hönnun og tónlist sem sannarlega á erindi á alheimsmarkað. Mikilvægt er því að gera íslenska hönnun og list í víðasta samhengi sýnilega og skapa vettvang þar sem henni er komið á framfæri með markvissri kynningu. Ekki má gleyma því að sköpun er mikilvæg forsenda nýsköpunar í atvinnulífi og verðmæt útflutningsvara. Mikilvægi listar er því augljós ekki síst nú þegar kreppir að.
Reykjavík Fashion Festival var stofnað af nokkrum einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á íslenskri fatahönnun og tónlist og vilja kappkosta að greinarnar öðlist þá virðingu og upphefð sem þær eiga skilið. Að hátíðinni standa einstaklingar sem tengjast fatahönnun eða tónlistarlífi með einum eða öðrum hætti, auk hönnuða sem eru með vörur nú þegar í framleiðslu og sölu, sem annt er um að hlúið sé vel að atvinnugreinunum til frambúðar. Þau fyrirtæki sem koma að skipulagningu viðburðarinrs eru; E-Label, Nikita, Birna, Thelma-Design, Mundi Design og Faxaflói.
Tilgangur hátíðarinnar er að standa að viðburði til kynningar á íslenskri tísku, hönnun og tónlist með því að veita listamönnum tækifæri á að koma listsköpun sinni á framfæri fyrir erlendum fjölmiðlum, samhliða að auka samgang og samstarf meðal íslenskra hönnuða og listamanna.
Reykjavík Fashion Festival verður haldin dagana 31 mars - 3 April 2011. Markmiðið er að bjóða á sýninguna erlendum gestum úr fjölmiðlageiranum ásamt fleira áhrifafólki til að tryggja sem mesta og víðtækasta umfjöllun. Dagskráin samanstendur af spennandi og athyglisverðum tískusýningum auk fjölbreytilegra og flottra tónlistarviðburða.
Mikill metnaður verður lagður í þennan viðburð og er það markmið þeirra sem að þessu standa að íslenskri hönnun og tónlist verði gert hátt undir höfði og fái þá verðskulduðu umgjörð og viðurkenningu sem listgreinarnar eiga skilið.















